Simrad AP44
Sjálfstýring frá Simrad
Nýlega kynnti Simrad nýja línu af sjálfstýringum fyrir minni báta. Um er að ræða tvær gerðir af stjórntölvum er nota sama stjórnborðið. Stjórnborðið heitir AP44 og stjórntölvurnar heita NAC-2 og NAC-3. Hægt er að tengja báðar tölvurnar bæði við sígangandi- og viðsnúningsdælur. NAC-2 er eingöngu með NMEA2000 samskiptastaðlinum en NAC-3 er með NMEA2000 og NMEA0183 samskiptastöðlunum. Hægt er að nota sömu fjarstýringar og aðrar Simrad stýringar nota, sem eru NF80/FU80. Einnig er boðið upp á fjarstýringu af gerðinni OP12.
vörunúmer 000-13291-001
Innifalið í verði:
AP44 stjórntæki
NAC2 stjórntölva
Precision-9 áttaviti
RF-25 stýrisstöðuskynjari
RPU80 vökvadæla
Micro-C grunnkit NMEA2000